Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

smellið til að fá
stærri mynd

 

Morgunverður
Frá upphafi höfum við lagt metnað okkar í að framreiða lystugan og fallegan morgunverð. Hann er að miklu leyti gerður úr lífrænt ræktuðum afurðum. Verslunin Yggdrasill leggur til heilsuvörur sínar: kaffi, te, morgunkorn, sultur, marmelaði og hunang er allt úr lífrænt ræktuðum afurðum, og rennur ljúflega niður með volgu brauði sem bakað er úr lífrænt ræktuðu korni hjá bakaranum í Grímsbæ. Sérvalinn reyktur silungur frá reykhúsinu á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit gleður bragðlaukana, heimareykt bændaafurð og algjört sælgæti. Íslenskar hænur, sem vappa frjálsar og lukkulegar um umhverfi sitt, leggja til eggin og grænmetið kemur úr vistvænum gróðurhúsum.

Gestir okkar njóta hinnar bragðgóðu hollustu af morgunverðarstelli sem er sérhannað fyrir Frost og Funa af Margréti Jónsdóttur, leirlistakonu frá Akureyri, en hún er ein af fremstu myndlistarmönnum hér á sínu sviði. Borðbúnaður Margrétar ljær andrúmi morgunverðarins listrænan blæ og hefur vakið notalega hrifningu hjá gestum okkar. Morgunverðarstofan er eins og önnur rými gistiheimilisins skreytt listaverkum íslenskra listamanna. Þar eru m.a. Síðasta kvöldmáltíð Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur, skúlptúrar Sigurjóns Ólafssonar (minnisvarði um tónskáldið Inga T. Lárusson) og Eldfjall Brynhildar Þorgeirsdóttur svo dæmi séu tekin.

 

      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir