Gistiheimilið Frost og Funi í Hveragerði stendur á fallegum stað á bökkum Varmár í fögru landslagi innan um lifandi hveri af ýmsu tagi. Það er opið allt árið fyrir einstaklinga og hópa. Hvort sem ætlunin er að slaka á frá önnum hversdagsins eða koma saman til skrafs og ráðagerða höfum við allt sem til þarf.
Í sérstöku móttökuhúsi er hægt að leigja fundarherbergi með fullkomnum fundarbúnaði. Gestir okkar geta einnig fengið sér hressandi sundsprett í 12 metra sundlaug okkar, hreinsað líkama og sál í gufubaðinu, skellt sér í frískandi útisturtu og slakað síðan á í heitum pottum á bökkum árinnar.
Hveragerði er lítill og vinalegur bær á Suðurlandi u.þ.b. 45 km. frá Reykjavík og u.þ.b. 90 km frá Keflavíkurflugvelli. Ferðaþjónusta er í örum vexti á svæðinu og í miðjum bænum er háhitasvæði sem er opið gestum milli kl. 13:00-18:00 virka daga allt sumarið auk þess sem hægt er að semja um sérstaka opnunartíma fyrir hópa. Í Hveragerði er upplýsingamiðstöð Suðurlands og verslunarmiðstöð ásamt ýmsum sérverslunum með mikið vöruúrval. |