Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

smellið til að fá
stærri mynd

 

Hveragerði er staðsett 45 km. frá Reykjavík og er nokkurs konar hlið að Suðurlandi, sem er eitt vinsælasta ferðamannasvæði á landinu. Gullfoss og Geysir laða til sín fleiri ferðamenn, bæði innlenda og erlenda en nokkrir aðrir staðir á landinu.

Ferðamenn geta siglt í bátum niður Hvítá auk þess sem hægt er að leigja hesta til styttri og lengri reiðferða.

Segja má að forn og ný saga lands og þjóðar blasi hvarvetna við. Á Þingvöllum(>thingvellir.is) þar sem hið forna Alþingi var háð langt fram eftir öldum liggja rætur örlaga þessarar litlu þjóðar. Í Skálholti var mesta menningarsetur þjóðarinnar um margar aldir. Þar er nú ein af höfuðkirkjum landsins ríkulega skreytt listaverkum Gerðar Helgadóttur og Nínu Tryggvadóttur sem báðar teljast til merkustu myndlistarmanna Íslendinga. Þar eru einnig til sýnis fornar minjar. Í Rangárþingi var vettvangur Brennunjálssögu, eins merkasta ritverks íslenskrar sagnaritunar.

Paradís göngumannsins
Við Hveragerði eru stórkostlegar gönguleiðir bæði lengri og skemmri eftir vali hvers og eins. Styttri gönguleiðir meðfram Varmá uppá Vorsabæjarvelli og Hamarinn; undir hlíðum Reykjafjalls og eftir heimalandi Garðyrkjuskóla ríkisins.

Í Ölfusforum neðan við Hveragerði eru varpsvæði fjölda fuglategunda. Lengri og fjölbreytilegri gönguleiðir eru um Hengilssvæðið ofan við Hveragerði, t.d. yfir í Grafning eða yfir Hengilinn að Nesjavöllum. Orkuveita Reykjavíkur hefur merkt margar gönguleiðir um þetta fjölbreytilega hvera- og gróðursvæði og gefið út gönguleiðakort af Hengilssvæðinu
Sjá vef Orkuveitu Reykjavíkur um gönguleiðir á Hengilsvæðinu

Dalirnir þrír uppaf Hveragerði heita Reykjadalur, Grændalur og Gufudalur sem er þeirra austastur. Grændalur dregur nafn sitt af litaauðgi landslagsins. Í Reykjadal er opinn gönguskáli í eigu Orkuveita Reykjavíkur, en skammt frá honum renna heitar uppsprettur í Reykjadalsá þar sem hægt er að baða sig í heitum pyttum.

Þaðan liggja svo merktar gönguleiðir um Hengilssvæðið, m.a. að Sleggjubeinsdal við Kolviðarhól, Ölfusvatni, Úlfljótsvatni og um Innstadal yfir Hengil að Nesjavöllum.

Í Gufudal er níu holu golfvöllur þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið. Golfklúbbur Hveragerðis rekur völlin. Símin þar er 483 5090.

      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir