Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

 

Í veitingastofu er boðið uppá morgunverð og kvöldverð úr fyrsta flokks hráefni, matseðil þar sem lögð er áhersla á fáa einfalda rétti og víntegundir, morgunverð, kvöldverð og nestispakka.

Einnig geta gestir fengið létt vín með mat og koníak/líkjör með kaffi. Til matargerðar er valið fyrsta flokks hráefni, saltfiskssteikur frá Eðalfiski í Hauganesi, silungur sem ræktaður er í sveitinni og sérvalið lambafilé frá Kjarnafæði á Akureyri.

Á undan aðalrétti er súpa kvöldsins með heimabökuðu brauði og á eftir kaffi og einnig er hægt að fá eftirrétt. Auk þess bjóðum við upp á Egils gullöl, Grolsch bjór og gosdrykki. Gestir geta pantað nestispakka að kvöldi fyrir náttúruskoðunar- eða gönguferðir daginn eftir.

 
      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir