Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

 

Um aldir var Öræfasveit ein einangraðasta sveit landsins. Jökulvötnin sem renna úr Vatnajökli sáu til þess að illfært var löngum um héraðið.  Það var ekki fyrr en brúin yfir Skeiðará var opnuð 1974 að þessi einangrun var rofin.

En þjónusta við ferðamenn á sér þó langa hefð í Sveitinni milli sanda því í aldanna rás tóku íbúar sveitarinnar á móti þreyttum ferðalöngum og veittu þeim næturhvíld og góðan beina áður en þeim var fylgt áfram á ferð sinni um sanda, ár og jökla.

Upp af Ingólfshöfða undir Öræfajökli, að kirkjustaðnum Hofi, upplifa gestir stórfenglegustu náttúruperlur landsins. Skammt er frá Hofi að Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi  þar sem gestir geta siglt milli ísjaka á lóninu.

Hægt er að fara í jöklaferðir og stutt er í fugla- og náttúruskoðun í Ingólfshöfða og í  Skaftafellsþjóðgarðinn þar sem er fjöldi merktra gönguleiða í stórbrotnu landslagi.

Í gistiheimilinu er leitast við að varpa ljósi á sérkennilega sögu og mannlíf "Sveitar milli sanda" í texta og myndum þar sem, vegna einangrunar í gegnum aldirnar, þróaðist sjálfbært menningar- og mannlíf.

Við komuna ganga gestir inn í glæsilega móttöku ásamt setustofu þar innaf er matsalur sem einnig þjónar sem fundarsalur.

Skoða bæklingin Sveitin milli sanda (pdf)

 
      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir