Í gistiheimili Frosts og Funa, Hofi í Öræfum eru 20 tveggja manna herbergi og eitt eins manns herbergi. Átta herbergi eru í 4 sumarhúsum og er baðherbergi í hverju húsi. Í nokkrum herbergjanna er hægt að búa um aukarúm. Við sumarhúsin í fyrrum skólahúsi eru fjögur tveggja manna herbergi og eitt eins manns en í því húsi eru tvö baðherbergi og setustofa.

Í aðalgistihúsi, þar sem einnig er matsalur og setustofa, eru átta herbergi og tvö baðherbergi. Eitt herbergjanna er auk þess með sérbaði. Vaskar eru í öllum herbergjum. Í mörgum herbergjanna geta gist þrír eða fjórir gestir.

      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir