Frost og Funi í Hveragerði er í þægilegri fjarlægð frá ys og þys borgarlífsins og er opið allt árið. Við tökum bæði á móti einstaklingum og hópum og leggjum áherslu á að gestir okkar eigi notalega dvöl, hvort sem ætlunin er að eiga rómantíska helgardvöl, hittast til skrafs og ráðagerða, eða bara slaka á frá önnum hversdagsins. Öll aðstaða er útbúin með hvíld og vellíðan gesta í huga. Gisting er í vel búnum herbergjum með íslenskri myndlist á veggjum, auk sundlaugar, gufubaðs og heitra potta. Móttaka og fundarherbergi með fullkomnum fundarbúnaði er í sérhúsi.
Frost og Funi Hofi í Öræfum er opið frá 20. maí til 5. september. Hof er staðsett í einni fegurstu og sérkennilegustu sveit á Íslandi, Sveitinni milli sanda. Yfir gnæfir Öræfajökull, framundan breiðir Skeiðarársandur úr sér, þjóðgarðurinn í Skaftafelli er örskammt frá og austur undan er stutt í töfraheim Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi.
Í faðmi þessarar ægifögru náttúru bjóðum við upp á notalega gistingu ásamt veitingaaðstöðu sem einnig nýtist sem fundarsalur. |