Í listagalleríi Frosts og Funa kennir ýmissa grasa. Listaverkin eiga þó flest það sameiginlegt að þau eru eftir viðurkennda listamenn sem störfuðu á síðari hluta síðustu aldar, sumir eru reyndar enn í fullu fjöri en aðrir eru horfnir af sjónarsviðinu.
Myndverkin skreyta gistiherbergin og sameiginlegt rými og má því segja að gestir Frosts og Funa dvelji um stund í litlu listasafni á bökkum Varmár og hvílist í andrúmi þessara meistara.
Lífið er stutt en listin er löng sögðu rómverjarnir fyrir tvö þúsund árum, það gildir enn í dag. Því er um að gera að njóta meðan tíminn og lífið leyfa. |